Wednesday, August 10, 2005
Ég er eiginlega búin að gefast upp á að hafa þessa síðu.
Við vinkonurnar erum með síðu þar sem ég skrifa nokkrum sinnum inn.
Endilega kíkið bara þangað í staðinn
SPICEGIRS
Stefanía is OUT!!
Posted at 8/10/2005 10:29:23 pm by stefania
Permalink
Wednesday, June 08, 2005
-26 dagar í portúgal
-37 dagar í afmælið hennar Öldu
-119 dagar í krakkann hennar Ásdísar
-42 mínútur í að Eyþór Ingi fari í sveitina
-81 dagur í Eyjar
-ca 2 tímar í að ég fari að vinna
...það er ekkert að frétta
Posted at 6/8/2005 1:19:39 pm by stefania
Permalink
Friday, May 27, 2005
Erum við að tala saman eða?
Hell yeah! Ég er að fara til Portúgal í sumar! 4.júlí.
Ég, Hildigunnur og Alda ákváðum að skella okkur saman til útlanda í sumar. Svona þar sem við gerum voða lítið annað en að djamma saman þá fannst okkur tilvalið að fara til Portúgal.
Við förum út 4.júlí og verðum í viku. Okkur fannst það alveg nóg, 2 vikur eru of lengi.
Við fengum geðveikt gott tilboð, 4*hótel, flug og akstur til og frá flugvelli á 54þús kjell.
Ó mæ okkur hlakkar ýkt til!!!
Allavega það sem á daga mína hefur drifið síðustu daga er fátt. Ég er bara að vinna á milljón á Eir, er í 100% vinnu. Það er ýkt gaman að vinna þarna.
Já svo er ég búin að fá einkunnirnar mínar. Náði öllu nema stærðfræði, datt alveg í hug að ég myndi ekki ná henni en ég er ýkt ánægð með að hafa náð öllu hinu.
jæja búin að blogga smá...farin að sofa...frí á morgun og ég ætla að sofa VEEELLL!!!
þangað til næst,bless kex og ekkert stress
Posted at 5/27/2005 12:19:57 am by stefania
Permalink
Friday, May 20, 2005
Jesús pétur og allir hinir
Alltaf er verið að stækka og stækka við "Breiðásfjölskylduna" ég held að húsið hennar ömmu springi við næsta jólaboð.
Baldur frændi og Lonni eru að fara að eignast kríli!
Já já það er alltaf verið að punga út börnum í þessari ætt...sem er BARA gott!
Til hamingju Baldur og Lonni.
hér er bumbusíðan:
Kúlukrútt
Posted at 5/20/2005 12:09:57 am by stefania
Permalink
Tuesday, May 17, 2005
Jæææja það eru þá einhverjir sem lesa síðuna, ég var bara farin að halda að ég væri ein í heiminum hér.
Allavega. Það sem hefur á daga mína drifið er...
....ég er búin í prófum, gekk ekkert alltof vel, var hálf veik í prófunum.
Svoá miðvikudaginn fyrir viku byrjaði ég í nýju vinnuni minni. Það er ýkt mikið stuð þarna. Rosalega skrýtið samt, en þetta venst, skúra skrúbba bóna. ÖÖÖ já, gleymdi að segja, ég er að vinna á elliheimilinu Eir.
Enívei, ég er í letikasti og nenni ekki að gera RASS!
´blehhh
Posted at 5/17/2005 8:34:22 pm by stefania
Permalink
Tuesday, May 10, 2005
er einhver að lesa þessa síðu...fyrir utan systir mína??
Posted at 5/10/2005 3:17:12 pm by stefania
Permalink
Sunday, May 08, 2005
Ég nenni ekki að setja myndirnar á sér síðu....vona að það sé í lagi að setja þennan link inn.
HÉR eru myndirnar...
...af
tískusýningunni
Posted at 5/8/2005 8:55:11 pm by stefania
Permalink
Wednesday, May 04, 2005
Myndir frá tískusýningunni koma ekki alveg strax, ég er ennþá að ná í þær og á eftir að setja þær inn í myndaalbúm. Þetta erum alveg um 300 myndir.
Posted at 5/4/2005 9:56:09 pm by stefania
Permalink
Prófin eru bara að verða búin hjá mér...ég á eitt próf eftir og þar er á mánudaginn.
Mér er ekki búið að ganga vel í prófunum, og mér líður ekkert vel út af því. Ég fór í sálfræði á mánudaginn, og var búin að læra og læra og læra, svo þegar ég mætti í prófið þá gat ég ekki neitt. Svo fór ég í enskupróf í gær, og gekk ágætlega, ég er bara orðin kvefuð og slöpp að ég næ ekkert að einbeita mér. Eftir enskuprófið fór ég í munnlegt enskupróf og fékk 8:D
Svo í dag fór ég í stærðfræði og gekk ÖMURLEGA!!! Ég vissi að ég myndi aldrei ná þessu prófi, en lærði nú samt, og afþví að ég lærði þá gat ég allavega helminginn, alls ekki meira en það.
Íslenskuprófið er svo á mánudaginn, og það verður algört pain, því ég kann og skil ekkert í setningarfræði!
Posted at 5/4/2005 2:49:49 pm by stefania
Permalink
Saturday, April 30, 2005
Spurning um langa færslu?
Það er búið að vera svo mikið að gera að ég held að ég nái í eitt stykki langa færslu.
Síðasta mánuð er ég búin að vera á fullu í skólanum að undirbúa tískusýningu sem við 8 stelpur á handíðabrautinni héldum. Tískusýningin var haldin 28.apríl í Íslensku Óperunni og gekk það ROSALEGA vel! Við vorum búnar að vera á milljón að undirbúa, og ég sást varla heima hjá mér og hafði voða lítið samband við vini mína:S Ég náði ekki einusinni að hringja í neinn og bjóða neinum, ekki einusinni ömmu.
En svo er þetta búið og tókst helvíti vel. Ég var að sýna 3 dress, Alda, Hildigunnur og Elín(frænka Öldu) voru módelin mín, og þær stóðu sig bara mjög vel. Það eru að koma myndir af sýningunni, ég læt ykkur vita þegar ég set þær inn.
Ég er komin með vinnu í sumar og í vetur með skólanum. Ég er að byrja að vinna á hjúkrunarheimilinu Eir eftir prófin, mér hlakkar rosalega til að sjá hvernig mér gengur í þessu, hvort ég höndli þetta. Og auðvitað er ég búin að segja upp í nóatúni. Ég var orðin mjög leið á að vera þarna. Síðasta vaktin mín er á morgun, ég átti að vinna í dag en var veik:S Helvítis "mánaðarveikin" er að gera mig brjálaða!
Prófin byrja á mánudaginn, ég byrja í sálfræði, er búin að læra soldið í dag, er komin soldið stutt:S
Ég fer bara í 4 próf, og er búin 9. maí. Byrja svo á Eir 11.maí(þegar Erla á afmæli).
Ég er flutt aftur heim, Pétur er fluttur norður í sumar til að vinna. Á meðan er ég hérna ein og yfirgefin í bænum, ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera af mér í kvöld. Mér leiðist svo.
En já ég er flutt til mömmu og pabba aftur, eða flutt aftur allt dótið mitt var hérna allan tímann, bara eki sængin mín og tannburstinn minn. Það verður skrýtið að fara að sofa aftur í herberginu sínu í litla rúminu alein. En ætli þetta venjist ekki á mann aftur, maður svaf nú alltaf einn í rúm 16 ár.
Ég ætla að reyna að skella mér til útlanda í sumar. Ég, Alda og Hildigunnur ætlum að reyna að skella okkur til spánar í sumar, bara vitum ekki hvert til spánar. Það verður ekkert flugfar pantað fyrr en í júní, þá ætlum við að finna eitthvað ódýrt tilboð og skella okkur út, helst í júlí.
Jæja þetta var þó eitthvað skrif. Ég ætla að fara að skella mér í sturtu eða eitthvað, ég er alveg að mygla hérna. Ble.
Posted at 4/30/2005 11:57:03 pm by stefania
Permalink